Skilmálar

Almennt

Beggi Ólafs áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru
Allar vörur eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Beggi Ólafs ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Begga Ólafs til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við Begga Ólafs með spurningar.

Verð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Varnarþing
Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur Begga Ólafs á grundvelli ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum

Efni (námskeið, fyrirlestrar, bækur, póstar) síðunnar á vegum Begga Ólafs eru einungis ráðleggingar. Allar ákvarðanatökur og aðgerðir sem þú tekur eru á þinni ábyrgð. Þú samþykkir að gera Begga Ólafs, og aðra hagsmunaaðila, ekki skaðabótaskylda gagnvart þínum ákvörðunum og aðgerðum. Árangurinn af því að sækja efni Begga Ólafs er ekki tryggður. Með því að sækja efni Begga Ólafs samþykkir þú þessa skilmála

Beggi Ólafs | kt. 090992-2019 | Bæjarhraun 6 | s. 6937227 | beggiolafs [at] beggiolafs.com | Skilmálar

Þessi síða notar vafrakökur (cookies) til að bæta upplifun þína á síðunni. Sjá skilmála um vafrakökur