Útsala!

Tíu skilaboð – Að skapa öryggi úr óvissu

Lengi vel hélt Bergsveinn Ólafsson, doktorsnemi í sálfræði, að hann yrði alltaf hamingjusamur og þyrfti ekki að mæta mikilli þjáningu eða takast á við sársauka til lengri tíma. Annað kom á daginn. Þá hófst veg­ferð með fjölda áskorana sem skilaði sér meðal annars í þessari bók.

Í fyrri bók sinni, Tíu skref – í átt að innihaldsríku lífi, kortlagði Bergsveinn hvernig öðlast mætti innihaldsríkt líf, skref fyrir skref. Nú heldur hann áfram á þeirri braut með tíu beinskeyttum skila­boðum sem geta hjálp­að fólki að nálgast sitt eigið jafn­vægi milli öryggis og óvissu í flóknum heimi stöð­ugra breytinga. Lykillinn að því er að komast hjá því að leggja á sig meiri þjáningu en ástæða er til og leggja vinnu í þá þætti sem gefa lífinu raunverulega merkingu.

Bergsveinn er þekktur fyrir þá ást­ríðu sína að hjálpa fólki og að skafa ekki utan af hlut­unum. Hér tekur hann les­endur með sér í heill­andi ferðalag og nýtir sér þek­k­ingu sína og reynslu til að opna fyrir þeim áhrifa­ríkar leiðir til að takast á við að­stæður sem þeir mæta í lífinu af festu, hug­rekki og heiðarleika.

2.396kr.

Þessi síða notar vafrakökur (cookies) til að bæta upplifun þína á síðunni. Sjá skilmála um vafrakökur